Lyrics

Stjarna björt á heiðum himni bláum, Hún mig töfrum batt á allar lundir Eins og barn ég stóð á stalli lágum, Starði frá mér numin margar stundir. Þráði ég hana mitt í dagsins draumi Dáði ég hennar ljóma í húmsins veldi. Hóf hún mig frá heimsins glysi og glaumi, Gaf mér styrk á mörgu svölu kveldi. Svo kom hret, ég sá hana ekki lengur. Sorgin fyllti hjartað þungum trega. Var sem brysti hörpu stilltur strengur. Stjörnunnar ég sakna ævinlega.
Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out