Lyrics

Karl og kerling í sínu koti kúrðu og áttu einn svein Hann Hrein Beljuhró geymd í fjósabroti Búkolla og hún bjó ein Svo einn daginn var horfin kusa og ekkert til hennar sést né frést Þá var Hreinn sendur út að hnusa harður og til í flest Deó (deó) deó (deó) Baulaðu Búkolla ef þú heyrir Deó (deó) deó (deó) En ekkert heyrðist hann áfram lengra hélt Þegar hann hafði gengið lengi með hælsæri komin var og mar Aumar iljar og sára strengi og stóð varla í lappirnar Ef hann fyndi ekki kusu í hvelli og kæmi óðara þeim strax heim Fengi hann ráðningu og rassskelli og rekin burt frá þeim Deó (deó) deó (deó) Baulaðu Búkolla ef þú heyrir Deó (deó) deó (deó) Baulaðu strax ef þú heyrir bofs í mér Þá er baulað úr háu bjargi þar Búkolla er bundin við grjót með fót Litlu innar á loðnu fargi liggur skessa ein ljót Strákur kemst síðan út með belju og stikar í áttina heim Beint heim En skessan vaknar og sýpur hveljur "Svei ég skal ná þeim tveim" Hæ hó. Korr í ró Ég skal ná ykkur skrattakollar Hæ hó. Korr í ró Það þýðir ekkert að sitja og drolla Þegar skessan var alveg að ná þeim sagði strákur "Hvað eigum við að gera"? Og þá sagði Búkolla "Muu. Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina Verður það þá að svo stóru vatni að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi." Gerði strákur þetta og var úr þetta líka ekki smá vatn Nú varð skessan alveg æf, hljóp heim í helli og kom með stóra bolann hans pabba síns og hann drakk allt vatnið í einum sopa Nú var skessan alveg að ná þeim aftur Þá segir Búkolla "Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina Verður það þá að svo stóru báli að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi." Hlær þá skessan og lætur bolaótuktina pissa öllu vatninu sem hann drakk á bálið og slökkva í því Þegar skessan var alveg að ná þeim einu sinni enn, segir Búkolla "Taktu hár úr hala mínum og leggðu það á jörðina Verður það þá að svo stóru fjalli að enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi." Stoppar þá strákur og segir "Ég er nú búinn að fá mig fullsaddan af þessu kjaftæði í þér beljuskratti þarna "Taktu hár úr hala mínum"... hvað? Ha? Þetta hefur ekkert virkað hjá þér hingað til Nú tek ég til minna ráða!" Skipti engum togum að stráksi hreinsaði hárin af halanum á Búkollu og stráði þeim í kring um sig Spruttu þá upp heilu fjallasalirnir Síðan hefur ekkert spurst til þeirra Deó (deó) deó (deó) Deó (deó) deó (deó) Deó (deó) deó (deó) Deó (deó) deó (deó)
Writer(s): Thorhallur Sigurdsson Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out