Music Video

Jesús Kristur og ég
Watch {trackName} music video by {artistName}

Featured In

Credits

PERFORMING ARTISTS
KK
KK
Performer
Magnús Eiríksson
Magnús Eiríksson
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Magnús Eiríksson
Magnús Eiríksson
Composer
Vilhjálmur frá Skálholti
Vilhjálmur frá Skálholti
Songwriter

Lyrics

Hér sit ég einn með sjálfstraustið mitt veika, á svörtum kletti' er aldan leikur við. Á milli skýja tifar tunglið bleika og trillubátar róa fram á mið. Af synd og fleiru sál mín virðist brunnin. Ó, sestu hjá mér, góði Jesú nú, því bæði ertu af æðstu ættum runninn og enginn þekkir Guð betur en þú. Ég veit þú þekkir einnig eðli fjandans sem alla daga situr fyrir mér. Og þótt ég tali vart í auðmýkt andans ber enginn dýpri respekt fyrir þér. Hvað sem trú vor týndum sauði lofar ef taglsins auðmýkt nær í hjartað inn, mig langar til, er tunglið færist ofar, að tala við þig eins og bróður minn. En hvern þann sem að hrellir mest og blekkir heldur fólkið jafnan bestan mann. Það skyldi engan undra sem að þekkir eitthvert brot af þessum lífins rann. Ó, Jesús mínn, þótt ég og þú sért firrtur og jafnvel hún sem eitt sinn fæddi þig, því almennt varstu ekki' af góðu virtur og ennþá síður virðir fólkið mig. Og um það mál við aldrei megum kvarta því uppi á himnum slíkt er kallað suð. En ósköp skrýtið er að eiga hjarta sem ekki fær að tala við sinn Guð. Hver síðastur þú sagðir yrði fyrstur, en svona varð nú endirinn með þig. Og úr því að þeir krossfestu þig, Kristur, hvað gera þeir við ræfil eins og mig?
Writer(s): Magnus Eiriksson, Vilhjalmur Fra Skaholti Gudmundsson Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out