Listen to Stofnar Falla by Samaris

Stofnar Falla

Samaris

Electronic

2,820 Shazams

Lyrics

Stofnar falla Stráin sölna. Stofnar falla. Stormur dauðans næðir alla. Ljóselskandi, langanþrungið lífið fyllir öll þau skörð, sækir fram í sigurvissu. Svo er strítt um alla jörð. Stríðsmenn falla. Hetjur hníga. Hjaðningum er stefnt til víga. Aldrei verður sæst á sakir. Sækja og verjast herjum tveim sólskinsbörn og synir skuggans. Svo er strítt um allan heim. Tefld er drápskák tveggja herja, tvíefld sókn og reynt að verja. Öllu tjaldað: erfðaheimsku, afturhaldi, þræladygð móti þroskans sókn til sigurs. Svo er strítt um alla byggð. Fallinn er hann Fjögramaki, fyrr sem lyfti Grettistaki. Þó að hetja hnigi í valinn, hefjum merkið fram skal stefnt. Syrgjum ei, en söfnum liði. Svo skal góðra drengja hefnt. Örn Arnarson (Magnús Stefánsson)
Writer(s): Trad, Thordur Steinthorsson, Jofridur Akadottir Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out