Lyrics

Hælar sem rísa við fjallanna tinda, þær synda, í reyknum sem mun mynda ringulreið sem þær óskuðu eftir. Fagrar að líta, þú bíður, þær bíta, það svíður, þeir kýta, nýta hvert gullið tækifæri á kvöldi sem þessu. Laminn í klessu, undan pressu af verði með sverði, hvað sem ég gerði var það allt, hah drengur ekkert fyrir þig, fyrir þig þig. Taktu mig, dansaðu, sýndu mér, glansaðu, gramsaðu í gömlu dóti sem þú finnur, ef þú vinnur, verður þunnur, góður siður, kemur niður, því miður. Glansið og glimmer sem festist í hári, minn sári, ég sakna með tári, Morgan hinn klári og Reykjavík, þú vekur mig Klæjar í klærnar, mig kitlar í tærnar og flærnar sem setjast á róna, hvað ertu að góna? Þú ert í Reykjavík. Laugavegsganga ég veit hún mun fanga þá marga, kríurnar garga, ó, nóttin í Reykjavík er engri lík. Liðaðir lokkar, vel háir sokkar, hún rokkar djammið í bænum með nokkrum vænum. Feitum hesti ríður heim. Ertu einn af þeim? Ertu geim? Ertu leim? Með stjörnur í augum og fimmþúsund draugum. Út á dansgólfið hún heldur, enginn stoppað hana getur, komdu með mér næturfengur eða viltu sofna? Ha, nei því Reykjavík, þú vekur mig
Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out