Lyrics

Ef þú blandar mér einn Móhító Ég máta á mig skjannahvíta skó Geng svo með þér glaður niður að sjó Gríp þá með mér annan Móhító Ef þú drekkur með mér Móhító Mun ég gróðursetja hrósaskóg Ef þú færð af masi meir en nóg Mæli ég með öðrum Móhító Æ, gefðu mér í glas (af Móhító) Eitt ofurlítið glas (af Móhító) Svona, svona, ekkert fjas Ég vil Móhító Já gefðu mér í glas (af Móhító) Eitt agnarlítið glas (af Móhító) Svona, svona, ekkert þras Gef mér Móhító Þó ég sötri mikið Móhító Má þér hvorki verða um né ó Ég er eins og meinlaust moskító Meðan ég fæ nóg af Móhító En ef mig skyldi skorta Móhító Skelf ég allur, svitna niður á þjó Ég mun sjálfsagt enga finna fró Fyrr en ég fæ nýjan Móhító Æ, gefðu mér nú glas (af Móhító) Vel útilátið glas (af Móhító) Svona, svona, ekkert fjas Gef mér Móhító Já færðu mér nú fat (af Móhító) Eitt heljarinnar fat (af Móhító) Svona kona ekkert plat Sæktu Móhító Er ég hef minn hinsta Móhító Til himins þar sem skáldið góða bjó Raula lítið kúpanskt Kalipsó Og kannski fæ mér einn Móhító! (Móhító) Já Móhító (Móhító) Gef mér Móhító (Móhító) Ískaldan Móhító (Móhító) Gef mér Móhító (Móhító) Móhító! (Móhító) Gef mér Móhító! (Móhító) Já Móhító! (Móhító)
Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Bragi Valdimar Skulason Lyrics powered by www.musixmatch.com
instagramSharePathic_arrow_out