Top Songs By Elín Hall
Credits
PERFORMING ARTISTS
Elín Hall
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Elín Hall
Songwriter
PRODUCTION & ENGINEERING
Elín Hall
Producer
Reynir Snær Magnússon
Producer
Árni Hjörvar
Producer
Lyrics
Háski í bíóhúsi háskólans
gotneskur glans
Hrifningin hrollvekjandi úr augum hans
heiðingjans
Blóðsugan brýtur engin loforð
þó henni bjóðist betra vín
En ég er ekki lengur þín
Ég skal fara og vona að hjartað
fylgi á eftir mér
Læra að sjá þig elska einhvern
sem er ekki ég
Og sama hvort að myndin endi vel
þá vil ég að allir viti að þú sérð ekki liti
Flöktandi ljósastaurar
Freðin tár
fangar vanginn blár
Krýpur í kirkjugarði greifinn sár
Fölur og grár
Upprisin hrópar uppvakningur
Það er síbreytilegt spil
að elska skrímsli eins og þig
Ég skal fara og vona að hjartað
fylgi á eftir mér
Læra að sjá þig elska einhvern
sem er ekki ég
Og sama hvort að myndin endi vel
er ég frekar viss um að þú hafir skemmt hana fyrir mér
og ég tengdi aldrei við þig og þessar svarthvítu myndir
Writer(s): Elín Hall
Lyrics powered by www.musixmatch.com