Credits
PERFORMING ARTISTS
AmabAdamA
Performer
COMPOSITION & LYRICS
Magnus Jonsson
Songwriter
Steinunn Jónsdóttir
Songwriter
PRODUCTION & ENGINEERING
Gnúsi Yones
Producer
Lyrics
Við erum hermenn, ekki herramenn,
Berjumst um eitthvað betra en
það sem engu máli skiptir.
Það eru menn þarna úti
Sem eru billjón dollara múltímenn
Og lögum eru undanskildir.
Þeir ráfa um
Og þeir ráða mun
Meira en þér er sagt,
þökk sé kálfunum,
Já, fjölmiðlaskátunum,
Hvað er lygi, hvað er satt?
Tröllríða almúganum
Með lygum sem við trúum
Mun meira en við ættum á.
Dómsvald sæktu þá
Sem að brjóta á manninum
En fá þig í lið við sig
Brosandi í myndavél eina skiptið
Sem þið standið hlið við hlið.
Valdafíkn og græðgi,
Hagsmunir og glæpir
En þú átt að halda kjafti á meðan kerfið á þig hrækir.
Erum við það sem engu máli skiptir?
Ekki vil ég sjá að börnin erfi þetta gallaða kerfi
þar sem ríkir verða ríkari og valdafíknin ríkjandi.
Við erum hermenn, ekki herramenn,
Berjumst um eitthvað betra en
það sem engu máli skiptir.
Það eru menn þarna úti
Sem eru billjón dollara múltímenn
Og lögum eru undanskildir.
Heyrðu mig nú!
Margur orðið hefur af aurum api,
Peninga afglapi,
Finnur enga hugarró
þó eigi meira en nóg.
Abbó út í nágranna sína,
Vill ávexti þeirra tína,
Einblína á það að græða meira
En lífið býður upp á miklu fleira.
Þó manneskjan sé grimm, grimm,
Veröldin niðdimm,
Enn finna má hræður fimm
Sem elska ekki bankann sinn.
Vinna minna til að sinna
Frekar því sem gleður, þá
Kerfið þeim ekki treður á.
Hverjir eru það sem fá
Að ákveða hvað er bannað og hvað má?
Við erum hermenn, ekki herramenn,
Berjumst um eitthvað betra en
það sem engu máli skiptir.
Það eru menn þarna úti
Sem eru billjón dollara múltímenn
Og lögum eru undanskildir.
Kynslóð eftir kynslóð,
öld eftir öld,
Alltaf verið mikilvægt að útvaldir séu við völd.
Þeir hafa haldið þrælunum gangandi með innantómum orðum
En raunin er sú að fátt hefur breyst síðan forðum.
Sumir eiga allt, nema miklu meira nú,
Ríkir standa saman og er skítsama ef þú
Vinnur og vinnur en aldrei, aldrei eignast neitt,
þrældómaveröld, við spyrjum hvenær verður þessu breytt?
Ekki vil ég sjá að börnin erfi þetta gallaða kerfi
þar sem ríkir verða ríkari og valdafíknin ríkjandi.
Writer(s): Magnus Jonsson, Steinunn Jonsdottir
Lyrics powered by www.musixmatch.com